Enska knattspyrnustórveldið Liverpool tilkynnti á vef sínum í kvöld að búið væri að ganga frá samningum við hinn 17 ára gamla Íslending, Guðlaug Victor Pálsson.
Eins og áður hefur komið fram var búið að nást samkomulag um samning til hálfs þriðja árs, eftir að AGF í Danmörku samþykkti kauptilboð Liverpool í piltinn. Samningurinn gildir til 30. júní 2011 og Guðlaugur Victor fer nú beint á æfingar með varaliði félagsins.