Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, svaraði kollega sínum hjá Liverpool, Rafel Benitez, fullum hálsi í gær, en sá síðarnefndi hafði sakað Ferguson um að fá sérmeðferð hjá enska knattspyrnusambandinu.
„Ég skil ekki hvað hann er að meina. Hann hefur augljóslega ruglast út af einhverju. Þegar hann lítur til baka, hlýtur hann að sjá hversu fáránleg ummæli hans voru. En ég vil ekki segja meira, því ég vil einbeita mér að liðinu mínu,“ sagði Ferguson á blaðamannafundi í gær eftir leik Manchester United og Chelsea.