Lið Guðjóns Þórðarsonar, Crewe Alexandra, tapaði 5:1 fyrir Northampton í ensku 2. deildinni í dag. Liðið situr enn á botni deildarinnar.
Julien Baudet fékk rauða spjaldið á 19. mínútu leiksins og Crewe því einum færri lungann úr leiknum.
Crewe situr því á botni deildarinnar með 19 stig eftir 25 leiki, tveimur stigum á eftir Cheltenham.