Fótboltamaðurinn Robinho hefur verið handtekinn í tengslum við nauðgun á skemmtistað í Leeds. Hann neitar öllum ásökunum en atvikið á að hafa átt sér stað 14. janúar sl.
Samkvæmt talsmanni Robinho neitar fótboltakappinn harðlega að hafa gert nokkuð saknæmt en Robinho mætti í gær sjálfviljugur á lögreglustöð í yfirheyrslur og var síðar sleppt gegn tryggingu. Talsmaðurinn sagði einnig að Robinho þætti sjálfsagt að vinna með lögreglunni sé þess þörf.
Robinho heitir fullu nafni Robson de Souza og fluttist frá Real Madrid til Manchester City í september fyrir metupphæð.