Dirk Kuyt vill vera áfram hjá Liverpool

Kuyt fagnar marki gegn Manchester City. Hann vill vera áfram …
Kuyt fagnar marki gegn Manchester City. Hann vill vera áfram í herbúðum liðsins. Reuters

Hollenski sóknarmaðurinn Dirk Kuyt, sem leikur með Liverpool á Englandi, hefur sagst vilja ver áfram hjá félaginu, en hann hefur verið undir smásjánni hjá þjálfara Juventus á Ítalíu, Claudio Ranieri.

„Ég er feykilega ánægður hérna og vil vera hér eins lengi og mögulegt er,“ sagði Kuyt.

„Viðræður um nýjan samning leikmannsins við Liverpool eru hafnar,“ sagði umboðsmaður leikmannsins, John Smith.

Kuyt verður 29 ára gamall á þessu ári og á 15 mánuði eftir af samningi sínum við Liverpool. Hann gekk til liðs við Rauða herinn frá Feyenoord árið 2006 og hefur gert 20 mörk fyrir liðið í 88 leikjum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert