Keane aftur í hópinn hjá Liverpool

Robbie Keane er í hópnum gegn Wigan.
Robbie Keane er í hópnum gegn Wigan. Reuters

Robbie Keane er á ný í leikmannahópi Liverpool sem sækir Wigan heim í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Rafael Benítez knattspyrnustjóri Liverpool hefur gefið til kynna að hann vilji halda öllum sínum leikmönnum fyrir baráttuna seinni hluta vetrar en Keane hefur verið orðaður við sitt gamla félag, Tottenham.

„Ég hef rætt málin við tvo mjög þýðingarmikla menn í hópnum og gert þeim ljóst að við einbeitum okkur alfarið að leikjunum okkar og engu öðru, og hvernig við förum að því að vinna hvern og einn," sagði Benítez en talið er að þar eigi hann við Keane og Daniel Agger, sem einnig hefur verið orðaður við brottför frá félaginu.

„Við eigum stórkostlega möguleika, getum unnið þrjá titla, og hver og einn þeirra væri frábær fyrir okkur og stuðningsmenn félagsins. Við verðum að vera faglegir og leggja alla okkar einbeitingu í leikina sjálfa, og vitum manna best að við höfum ekki nýtt öll tækifæri til að vinna okkar heimaleiki sem skyldi," sagði Benítez.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert