Given í læknisskoðun hjá Manchester City

Shay Given er að ganga til liðs við Manchester City.
Shay Given er að ganga til liðs við Manchester City. Reuters

Írski markvörðurinn Shay Given gengur í raðir Manchester City í dag en Sky Sports sjónvarpsstöðin greindi frá því fyrir stundu að markvörðurinn væri þessa stundina í læknisskoðun hjá Manchester-liðinu. City hefur komist að samkomulagi við Newcastle um kaupverðið en í síðustu viku hafnaði Newcastle 5 milljón punda tilboði frá City.

Given hefur varið mark Newcastle frá árinu 1997 og hefur spilað alls 450 leiki með liðinu. Eftir 5:1 tap gegn Liverpool á heimavelli um jólin fannst Given komið nóg og óskaði eftir því að verða settur á sölulista.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert