Keane ekki í leikmannahópi Liverpool

Robbie Keane. Hefur hann leikið sinn síðasta leik fyrir Liverpool.
Robbie Keane. Hefur hann leikið sinn síðasta leik fyrir Liverpool. Reuters

Enskir fjölmiðlar greina frá því í morgun að Robbie Keane verði ekki í leikmannahópi Liverpool sem tekur á móti Chelsea í toppslag ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í dag. Sé það raunin má fastlega reikna með því að Írinn sé á förum frá félaginu en hann hefur verið sterklega verið orðaður við sitt gamla félag, Tottenham.

Keane hefur átt erfitt uppdráttar hjá Liverpool sem keypti írska framherjann frá Tottenham síðastliðið sumar á 20 milljónir punda.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert