Liverpool hafnaði í dag tilboði frá Newcastle í finnska miðvörðinn Sami Hyypia. Joe Kinnear knattspyrnustjóri Newcastle greindi frá þessu í kvöld en hann vill styrkja lið sitt áður en félagskiptaglugganum verður lokað annað kvöld.
,,Ég hef undanfarna daga eytt mestum tíma í að reyna að fá nýja leikmenn. Ég bar víurnar í Hyypia en Liverpool vildi ekki láta hann fara,“ sagði Kinnear.
Hyypia hefur staðið vel í þeim leikjum sem hann hefur tekið þátt í fyrir Liverpool á þessari leiktíð en Finninn sterki, sem er 35 ára gamall, hefur verið í herbúðum liðsins í 10 ár.