Þá virðist það loksins í höfn. Andrei Arshavin er genginn til liðs við Arsenal, að því er segir á heimasíðu Lundúnaliðsins.
„Arsenal tilkynnir með mikilli ánægju að rússneski miðjumaðurinn Andrei Arshavin hefur gengið til liðs við félagið frá frá Zenit á langtíma samningi.“
Gera má ráð fyrir að Arshavin hefji leik strax á sunnudag, þegar liðið mætir erkifjendunum í Tottenham.