Emmanuel Adebayor, sóknarmaður Arsenal, tognaði aftan í læri í fyrri hálfleiknum í leik liðsins gegn Tottenham í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag og var borinn af velli.
Fastlega má búast við því að Adebayor verði frá keppni í 3-4 vikur, eins og algengast er með svona meiðsli, en það verður væntanlega staðfest á morgun hversu alvarleg tognunin er.