Chelsea hefur þegar hafið leit að nýjum knattspyrnustjóra í stað Brasillíumannsins Luiz Felipe Scolari sem í dag var sparkað frá störfum sem knattspyrnustjóri Chelsea. Hollendingurinn Guus Hiddink og Ísraelsmaðurinn Avram Grant eru þeir fyrstu sem eru orðaðir við starfið en Sky Sports greindi frá því að það kæmi til greina að ráða þá báða til starfans.