Steven Gerrard fyrirliði Liverpool er á góðum batavegi og gæti verið kominn í baráttuna fyrr en áætlað var. Liverpool-menn gera sér vonir um að Gerrard verði með þeim um næstu helgi þegar þeir mæta Manchester City en miðjumaðurinn snjalli tognaði í læri í viðureign Liverpool og Everton í byrjun mánaðarins og var talið að hann yrði frá keppni í um þrjár vikur.
,,Hann virðist þurfa skemmri tíma til að jafna sig en aðrir leikmenn og hugsanlega verður hann í leikmannahópnum gegn Manchester City. Sjálfur vill hann spila hvern einasta leik,“ segir Rafael Benítez knattspyrnustjóri Liverpool.