Lið Crewe Alexandra vann góðan sigur á Huddersfield í dag, 3:1, en við stjórnvölinn hjá Crewe situr Guðjón Þórðarson.
Crewe fékk því mikilvæg þrjú stig í botnbarátunni, en liðið er nú komið í 22. sætið, einu stigi á undan Hereford, en neðstir eru Cheltenham Town með 21 stig. Enn eru þó þrjú stig í næsta lið fyrir ofan, Brighton And Hove, en fjögur lið falla úr deildinni.