Fulham sigraði West Bromwich Albion, 2:0, í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu á Craven Cottage í London í dag. Fulham er þar með komið í 8. sæti deildarinnar með 33 stig en WBA situr áfram á botninum með 22 stig.
Staðan var 0:0 í hálfleik en Bobby Zamora kom Fulham yfir á 61. mínútu og Andy Johnson bætti við marki, 2:0, á 72. mínútu.