Lawrence: Hermann, klipptu á þér neglurnar!

Hermann Hreiðarsson.
Hermann Hreiðarsson. Reuters

Liam Lawrence, kantmaður hjá Stoke, kvartar sáran yfir því að Hermann Hreiðarsson, sé með langar neglur, en þeir áttust við um helgina þar sem Hermann átti stóran þátt í jöfnunarmarki Portsmouth.

Lawrence segir að Hermann hafi tvívegis sökkt nöglunum í hálsinn á sér, en þeir voru þá eitthvað að kljást. 

„Við Hermann vorum að kljást eitthvað og  hann kleip mig í hálsinn. Ég lét þetta kyrrt liggja þegar hann gerði það í fyrsta sinn, en þegar hann gerði það aftur og mun fastar þá varð ég að hrista hann af mér. Neglurnar á honum voru nefnilega ansi langar og hann þarf að klippa þær,“ segir Lawrence og bætir við að þeir hafi síðan gantast með þetta.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert