Lassana Diarra, miðjumaður Real Madrid, er fullviss um að lið hans geti unnið útileikinn gegn Liverpool í kvöld, í seinni leik liðanna í meistaradeildinni, en Liverpool vann fyrri leikinn 1:0 á Santiago Bernabeu í Madrid.
„Ég er sannfærður um að við munum sigra. Allt er hægt í fótbolta. Það veltur mikið á hvernig byrjun leiksins verður því þeir munu eflaust pressa okkur stíft í byrjun. En við getum gert usla ef við náum að spila okkar leik. En við gerum ekki mikið ef við höfum sífelldar áhyggjur af umgjörðinni. Aðdáendur Liverpool eru háværir og gera allt sem þeir geta til að trufla okkur, en við verðum að halda einbeitingu,“ sagði Diarra.