Guðlaugur Victor Pálsson lék allan tímann með varaliði Liverpool í kvöld þegar liðið gerði 2:2 jafntefli við Manchester United en sem kunnugt er gekk Guðlaugur í raðir Liverpool frá danska liðinu AGF í janúar.
Svissneski landsliðsmaðurinn Philipp Degen og Daniel Pacheco gerðu mörkin fyrir Liverpool en Daniel Welbeck og brasilíski tíburabróðirinn Fabio Da Silva gerðu mörk United. Ole Gunnar Solskjær þjálfari varaliðs United stillti upp sterku liði en auk Wlbeck og Da Silva sem báðir hafa spilað með aðalliðinu á tímabilinu stóð Tomasz Kuszczak á milli stanganna.