Daniel Agger danski varnarmaðurinn í liði Liverpool hefur jafnað sig af meiðslum og gæti spilað gegn Aston Villa um komandi helgi að sögn Rafael Benítz knattspyrnustjóra Liverpool.
,,Daniel er byrjaður að æfa á ný. Vonandi verður hann klár í slaginn um helgina en það veltur á því hvort læknar telji áhættusamt að láta hann spila eða ekki. Að fá Agger til baka er gleðiefni. Við höfum saknað hans en vonandi verður hann með okkur það sem eftir lifir tímabilsins,“ segir Benítez á vef félagsins.
Alvaro Arbeloa sem missti af leiknum gegn Manchester United um síðustu helgi ætti að verða leikfær gegn Villa að sögn Benítez en hæpið er að Xabi Alonso verði búinn að ná sér.