Given kom City í 8-liða úrslitin

Michael Jakobsen jafnaði fyrir AaB í lok venjulegs leiktíma og …
Michael Jakobsen jafnaði fyrir AaB í lok venjulegs leiktíma og hér á hann í höggi við Shaun Wright-Phillips. Reuters

Írski markvörðurinn Shay Given tryggði í kvöld Manchester City sæti í 8-liða úrslitum UEFA-bikarsins í knattspyrnu. City tapaði óvænt fyrir dönsku meisturunum AaB í Álaborg, 2:0, og liðin voru þar með jöfn samanlagt, 2:2. Í vítaspyrnukeppni, að lokinni framlengingu, varði Given tvær spyrnur Dananna og þar með slapp City áfram.

Allt benti til þess að City færi örugglega áfram því staðan var 0:0 framá 84. mínútu. Þá skoraði Luton Shelton fyrir Álaborgarliðið og í uppbótartíma skoraði Michael Jakobsen úr vítaspyrnu, 2:0, og tryggði AaB framlengingu.

Úrslit í 16-liða úrslitum UEFA-bikarsins í kvöld, feitletruðu liðin áfram, samanlögð úrslit í svigum:

Metalist Kharkiv - Dynamo Kiev 3:2 (3:3)
Shakhtar Donetsk - CSKA Moskva 2:0 (2:1)
Galatasaray - Hamburger SV 2:3 (3:4)
Zenit St. Pétursborg - Udinese 1:0 (1:2)
AaB - Manchester City 2:0 (2:2)
Braga - París SG 0:1 (0:1)

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert