Guðjón Þórðarson og lærisveinar hans í Crewe Alexandra sækja MK Dons heim í ensku 2. deildinni í knattspyrnu í kvöld. MK Dons, sem leikur undir stjórn Ítalans Roberto Di Matteo, fyrrum leikmanns Chelsea, er í fjórða sæti deildarinnar með 68 stig en Crewe er í 18. sæti með 42 stig.