Peter Crouch og Shaun Wright-Phillips eiga við meiðsli að stríða og er afar ólíklegt að þeir geti spilað með enska landsliðinu í leiknum gegn Slóvökum en þjóðirnar eigast við í vináttuleik á laugardaginn. Á miðvikudag í næstu viku mæta svo Englendingar liði Úkraínu í undankeppni HM.
Hvorugur þeirra gat æft í dag og það skýrist á morgun hvort þeir geti tekið þátt í leiknum. Báðir hafa verið í fínu formi með liðum sínum upp á síðkastið en Crioch skoraði bæði mörk Portsmouth í sigri á Everton um síðustu helgi.