Steven Gerrard fyrirliði Liverpool telur Pepe Reina vera einn besta markvörð í heiminum í dag og segist ekki vilja skipta á honum og neinum öðrum. Reina hélt marki sínu hreinu með í 100. leiknum í 5:0 sigri gegn Aston Villa og er hann þar fljótastur af markvörðum Liverpool frá upphafi að gera það.
,,Við erum virkilega ánægðir með markvörðinn sem við höfum og í mínum huga er Pepe líklega besti marvörður heimsins í dag. Ef þú lítur á leikina sem við höfum unnið upp á síðkastið þá hefur Pepe verið mjög mikilvægur í þeim með því að verja á mikilvægum augnablikum og hann hefur jafnvel átt þátt í nokkrum mörkum okkar. Svo við vitum hversu góður hann er og það er ekki spurning að hann er meðal þeirra bestu,“ segir Gerrard á vef Liverpool.