Wolves tók stórt skref í átt að úrvalsdeildinni þegar liðið vann öruggan sigur á Southampton, 3:0, í ensku 1. deildinni í knattspyrnu í dag. Úlfarnir gerðu út um leikinn á fyrstu 20 mínútunum en þá gerðu þeir þrjú mörk og voru Sam Vokes, Jody Craddock og David Jones þar að verki.
Wolves hefur 80 stig í fyrsta sæti, grannar þeirra í Birmingham hafa 75, Sheffield United er í þriðja sætinu með 72 og Reading í því fjórða með 69 stig en liðin í þriðja og fjórða sæti eigast við þessa stundina.