Þeir Edwin van der Sar, markvörður, Cristiano Ronaldo og Wayne Rooney eru ekki í leikmannahópi Manchester United fyrir undanúrslitaleik bikarkeppninnar gegn Everton, sem hefst á Wembley klukkan 15.00 í dag.
BBC skýrði frá því rétt í þessu að þremenningarnir væru ekki í leikmannahópi Alex Fergusons fyrir leikinn og þeir hefðu ekki farið með liðinu í leikinn í London.