Hermann Hreiðarsson var í byrjunarliði Portsmouth gerði markalaust jafntefli gegn Newcastle á útivelli í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Portsmouth er 7 stigum frá fallsæti en staða Newcastle er ekki góð en liðið er með 31 stig í næst neðsta sæti. Middlesbrough er einnig með 31 stig í þriðja neðsta sæti en þrjú neðstu liðin falla.
Alan Shearer, sem stýrir liði Newcastle til bráðabirgða, sagði að
leikurinn gegn Hermanni Hreiðarssyni og félögum í Portsmouth í kvöld væri sá mikilvægasti hjá félaginu í langan tíma.