Eiður á varamannabekk Barcelona

Eiður Smári.
Eiður Smári. Reuters

Eiður Guðjohnsen er á meðal varamanna hjá Barcelona þegar liðið mætir Chelsea í síðari viðureign liðanna í undanúrslitum Meistaradeildarinnar. Thierry Henry er hins vegar ekki í leikmannahópnum. Leikurinn fer fram á Stamford Bridge og hefst klukkan 18.45.

Chelsea: Cech, Bosingwa, Cole, Alex, Terry, Essien, Ballack, Lampard, Malouda, Anelka, Drogba. Varamenn: Hilario, Ivanovic, Di Santo, Obi Mikel, Kalou, Belletti, Mancienne.


Barcelona: Valdes, Alves, Abidal, Pique, Toure, Busquets, Keita, Xavi, Iniesta, Eto'o, Messi. Varamenn: Pinto, Cáceres, Eiður Smári, Krkic, Sylvinho, Hleb, Rodríguez.

Fyrri leiknum á Nou Camp lyktaði með markalausu jafntefli en sigurliðið í kvöld mætir Manchester United í úrslitaleik sem fram fer í Róm 27. þessa mánaðar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert