Lampard bestur hjá Chelsea í þriðja sinn

Frank Lampard, bestur hjá Chelsea.
Frank Lampard, bestur hjá Chelsea. Reuters

Frank Lampard hefur verið kjörinn leikmaður ársins hjá enska knattspyrnufélaginu Chelsea af stuðningsmönnum þess, og er þetta í þriðja skipti sem hann hlýtur þessa útnefningu. Hann er sá fyrsti í sögu félagsins sem er kjörinn þrisvar.

Lampard, sem er þrítugur, hefur átt frábært tímabil með Chelsea, skorað 19 mörk, og var tilnefndur í kjöri íþróttafréttamanna á leikmanni ársins í Englandi.

Fjórir gamalkunnir kappar, John Hollins, Ray Wilkins, Dennis Wise og Gianfranco Zola hafa allir verið kjörnir leikmenn ársins hjá Chelsea í tvígang en Lampard steig skrefi framfyrir þá með sigri í kjörinu í ár.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert