Argentínski miðjumaðurinn Javier Mascherano vonast til að fá landa sinn, Carlos Tévez, til liðs við Liverpool frá Manchester United í sumar en þeir léku saman hjá West Ham fyrir þremur árum.
Tévez hefur verið orðaður við Liverpool en lánssamningur hans við Manchester United rennur út í næsta mánuði.
,,Það yrði frábært að hafa Carlos með sér í liði. Ég veit hversu góður leikmaður hann er. En ég veit ekki hver staðan er með hann en það eina sem ég get sagt að hann er frábær manneskja og frábær leikmaður,“ segir Mascherano.
Hvort sem þeir Tévez og Mascherano koma til með að spila saman með Liverpool verða þeir í sama liði í næsta mánuði en þeir verða í eldlínunni með Argentínumönnum sem mætir Kólumbíumönnum og Ekvadorum í undankeppni HM.