Stjórnarformaður Wigan, Dave Whelan, staðfesti í dag að Manchester United hefði lagt fram kauptilboð í kantmanninn Antonio Valencia. Talið er að tilboðið hljómi upp á um 16 milljónir punda.
„Þeir hafa haft samband við okkur og við munum hefja samningaviðræður fljótlega. Þeir hafa haft áhuga síðustu 2-3 mánuði og hafa lagt fram kauptilboð. Ég held þeir hafi verið að bíða eftir að sjá hvort Ronaldo færi til Real Madrid, sem er nú að ganga í gegn. Ég býst því við að niðurstaða fáist innan tveggja vikna,“ sagði Whelan.