Florentino Perez forseti spænska knattspyrnuliðsins Real Madrid ætlar að halda áfram að spreða fé í kaup á nýjum leikmönnum. Hann ætlar ekki að láta sér nægja að kaupa þá Kaká og Cristiano Ronaldo því nú hefur hann beint sjónum sínum að Xabi Alonso miðvallarleikmanni Liverpool.
Að því er fram kemur í enskum og spænskum fjólmiðlum í dag er Perez reiðbúinn að láta Liverpool fá annaðhvort Hollendinginn Arjen Robben eða Argentínumanninn Gabriel Heinze í skiptum fyrir Alonso auk þess að greiða Liverpool væna fúlgu fjár.
Perez er mikill aðdáandi spænska miðjumannsins. Hann hefur þegar boðið Liverpool 18 milljónir punda í leikmanninn sem Rafael Benítez hafnaði þegar í stað en heimildir herma að Liverpool vilji fá í það minnsta 27 milljónir fyrir Alonso.