Carlos Tevez mun ekki ganga til liðs við Liverpool í sumar að því er heimildir Sky Sports herma í kvöld. Argentínumaðurinn hefur spilað með Manchester United síðustu tvö árin en ekki liggur ljóst fyrir hvar hann spilar á næstu leiktíð.
Manchester United hefur ekki tekið ákvörðun um það hvort Tevez verður áfram í herbúðum liðsins en ensku meistararnir hafa forkaupsréttinn af honum. Mörg lið í ensku úrvalsdeildinni hafa sýnt áhuga á að fá hann til liðs við sig og þeirra á meðal eru Liverpool, Chelsea og Manchester City.