Spænska blaðið El Mundo Deportivo segir að Samuel Eto'o, kamerúnski knattspyrnumaðurinn hjá Barceona, sé kominn í viðræður við enska félagið Manchester City.
Talið er að City sé tilbúið til að greiða Barcelona um 30 milljón evrur fyrir Eto'o, og gera hann að launahæssta leikmanni heims. Blaðið segir að Eto'o krefjist þess að samningurinn við City verði til fjögurra eða fimm ára.