Fernando Torres, sóknarmaður Liverpool, kveðst hafa rætt við Rafael Benítez knattspyrnustjóra félagsins og mælt með því við hann að hann reyni að kaupa þrenninguna frá Valencia, David Villa, David Silva og Juan Mata, eða að minnsta kosti einn þeirra.
Valencia er í miklum fjárhagskröggum og talið er að félagið selji alla leikmennina í sumar og Villa hefur ítekað verið orðaður við Manchester United og Chelsea.
„Við erum með góða leikmenn en þurfum kannski aðra og ég vona að Liverpool nái í menn eins og Silva, Mata eða Villa. Ég hef mælt með þeim við Benítez og vona að við höfum efni á þeim. Við þurfum að bæta okkur í leikjum gegn lakari liðunum í úrvalsdeildinni og þá gætu leikmenn í þessum gæðaflokki gert útslagið," sagði Torres við Sky Sports.