Kevin Doyle verður kynntur til sögunnar sem nýr liðsmaður Wolves á morgun að því er heimildir Sky fréttastofunnar herma en félagið hefur boðað til fréttamannafundar í fyrramálið.
Doyle kemur til nýliðanna frá Íslendingaliðinu Reading og greiða Úlfarnir 6 milljónir punda fyrir írska framherjann sem jafngildir rúmlega 1,2 milljörðum íslenskra króna.
Fleiri félög hafa verið á höttunum eftir Doyle en Aston Villa, Everton, Sunderland, Bolton og Fulham hafa borið víurnar í leikmanninn en Wolves virðist hafa unnið kapphlaupið.