Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, kveður Cristiano Ronaldo með virktum á heimasíðu félagins í dag, en formlega var gengið frá félagsskiptum Portúgalans snjalla til Real Madrid í dag.
„Cristiano hefur reynst frábær leikmaður fyrir félagið. Á sex árum hans á Old Trafford hefur hann þróast í besta leikmann heims. Framlag hans hefur ráðið miklu í velferð félagsins á liðnum árum og hæfileikar hans og smitandi persónuleiki hafa hrifið áhorfendur um allan heim. Allir hér óska honum alls hins besta í framtíðinni,“ segir Ferguson á heimasíðu félagsins.