Portúgalski knattspyrnukappinn stóðst læknisskoðun hjá spænska stórliðinu Real Madrid og verður kynntur til sögunnar hjá félaginu í kvöld. Talið er á bilinu 70-80.000 manns mæti á heimavöll félagsins, Santiago Bernabeu, til að taka á móti stórstjörnunni sem hafði vistaskipti frá Manchester United fyrir metfé í síðasta mánuði.
Ronaldo mætti til Madridar í dag og fór beint í læknisskoðun á Sanitas La Moraleja sjúkrahúsinu. Eftir hana sagði Carlos Diez læknir Real Madrid að Ronaldo væri í toppstandi og tilbúinn að hefja æfingar með liðinu.
Ronaldo verður í keppnistreyju með númerinu 9 og ef að líkur lætur verður gríðleg sala í búningum á næstunni hjá Real Madrid með nafni Ronaldo og númeri hans á bakinu og spurning hvort búningasalan verði meiri nú en þegar David Beckham gekk í raðir Real Madrid.