Enskir veðbankar snarbreyttu í morgun stuðlum sínum fyrir þá sem vilja leggja undir að franski knattspyrnumaðurinn Franck Ribéry hjá Bayern München gangi til liðs við Liverpool. Það gerðist í kjölfar frétta í enskum fjölmiðlum um að Ribéry hefði skipt um skoðun og vildi gerast liðsmaður Liverpool.
Einn stærsti veðbankinn breytti sínum stuðlum úr 66/1 í 8/13.
Ribéry hefur til þessa staðhæft að annaðhvort verði hann kyrr hjá Bayern eða gangi til liðs við Real Madrid.