Gianfranco Zola knattspyrnustjóri West Ham heldur áfram að hæla Eiði Smára Guðjohnsen, fyrrum samherja sínum hjá Chelsea, í viðtölum við enska fjölmiðla og gefur í skyn að hann vildi sjá hann í sínum röðum.
Zola hefur áður sagt að hann gæti vel séð Eið fyrir sér í liði West Ham og í samtali við Sky Sports í dag bar Barcelona-manninn aftur á góma.
„Eiður er svo sannarlega verulega góður leikmaður og ég er viss um að West Ham er ekki eina liðið sem er að svipast um eftir leikmanni í hans gæðaflokki," sagði Zola.