Michael Owen verður með númerið 7 á keppnistreyju sinni í liði Manchester United og fetar þar með í fótspor ekki ómerkari manna en Cristiano Ronaldo, David Beckham, Eric Cantona, Bryan Robson og George Best.
Manchester United kynnti þrjá nýjustu leikmenn sína í dag, þá Owen, Antonio Valencia og Gabriel Obertan en þeir eiga að fylla skörð Cristiano Ronaldo og Carlosar Tévez sem eru horfnir á braut.
,,Það er mikill hugur í mér og mig hungrar í að standa mig vel. Ef þessi áskorun fær þig ekki til að brosa og hleypa lífi í ferilinn þá er ekkert sem gerir það. Ég hef fulla trú á að ég geti gert góða hluti með þessu frábæra liði,“ sagði Owen við fréttamenn í dag.