Manchester City hefur loks náð samkomulagi um kaupin á Carlos Tévez. Argentínumaðurinn hefur samþykkt að gera fimm ára samning við City og mun hann skrifa undir samninginn lokinni læknisskoðun á næstu dögum.
Manchester City hefur loks náð samkomulagi um kaupin á Carlos Tévez. Argentínumaðurinn hefur samþykkt að gera fimm ára samning við City og mun hann skrifa undir samninginn að lokinni læknisskoðun sem verður gert á honum á næstu dögum.
,,Hann hefur ekki bara framúrskarandi tækni yfir að ráða heldur er hann markaskorari og hann mun færa okkur mikla vídd í sóknarleikinn. Ég get ekki beðið eftir því að bjóða hann velkominn til City,“ segir Hughes á vef félagsins.
Tévez hefur fengið úthlutað keppnistreyju með númerinu 32 en hann bar það númer hjá Englandsmeisturum Manchester United.