Arshavin tryggði Arsenal sigur

Robin Van Persie skýtur boltanum að marki Atletico Madrid í …
Robin Van Persie skýtur boltanum að marki Atletico Madrid í dag. Reuters

Rússinn Andrei Arshavin skoraði bæði mörk Arsenal þegar liðið sigraði spænska liðið Atletico Madrid á æfingamóti sem hófst á Emirates Stadium í dag.

Öll mörkin komu á síðustu 5 mínútum leiksins. Arshavin kom Lundúnaliðinu í 1:0 á 86. mínútu. Aðeins einni mínútu síðar jafnaði Pacheco metin fyrir Madridarliðið en Arshavin var aftur á ferðinni á 89. mínútu og tryggði Arsenal sigurinn.

Í hinum leiknum á mótinu hafði Rangers betur á móti Paris SG, 1:0, og skoraði Madjid Bougherra sigurmarkið.

Derby og Stoke skildu jöfn, 2:2, á Pride Park. Liam Lawrence og Ricardo Fuller gerðu mörkin fyrir Stoke.

Blackburn varð að láta sér lynda 2:2 jafntefli gegn Sheffield Wednesday eftir að hafa komist í 2:0 með mörkum frá Ryan Nelson og Jason Roberts.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert