Arsenal fór létt með skoska meistaraliðið Rangers en liðin áttust við í úrslitaleik á Emirates Cup á Emirates vellinum í Lundúnum í dag. Arsenal hafði betur, 3:0, þar sem Jack Wilshere skoraði af mörkum Arsenal og króatíski framherjinn Eduardo da Silva eitt en Arsenal gerði út um leikinn á fyrstu 10 mínútunum með því að skora tvö mörk.