Umboðsmaður Nemanja Vidic, varnarmannsins sterka hjá Manchester United, segir það ekki rétt það sem kom fram í fréttum í gær, að Vidic vonaðist eftir því að fara til Barcelona fyrr en síðar. Hann segir leikmanninn ánægðan hjá Manchester Untied.
„Manchester hefur nýlega misst Ronaldo og Tevéz og þeir vilja ekki missa annan mikilvægan leikmann. Það væru draumaskipti fyrir Vidic að fara til Barcelona. Hann yrði himinlifandi að ganga til liðs við þá,“ var Fabbri sagður hafa sagt við útvarpsstöðina RAC-1 og El Mundo í gær.
Hann neitar nú þessum ummælum.
„Þetta er ekki satt. Ég sagði aldrei þessa hluti. Vidic er ánægður hjá Manchester United. Ef Barcelona gerir tilboð í leikmanninn, þá er það undir United komið að taka ákvörðun.“