Wengar varar við vanmati

Arséne Wenger.
Arséne Wenger. Reuters

Knattspyrnustjóri Arsenal, Arséne Wenger, hefur varað sína leikmenn við vanmati á Celtic fyrir seinni leikinn gegn liðinu í forkeppni Meistaradeildarinnar, en Arsenal vann góðan útisigur á Celtic í fyrri leik liðanna í gær, 2:0.

„Við erum með gott forskot, en leikurinn er 180 mínútur, við erum með forskotið eftir aðeins 90 mínútur. Við viljum leika vel í 180 mínútur, það er okkar markmið. Við verðum að vinna leikinn á heimavelli, við verðum að taka hann alvarlega, því þetta er mikilvægur leikur,“ sagði Wenger.

Mörk Arsenal í leiknum voru af ódýrari gerðinni, skot Fabregas fór af William Gallas í netið og Gary Caldwell gerði sjálfsmark.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert