Sir Alex Ferguson knattspyrnustjóri Manchester United hrósaði Wayne Rooney í hástert eftir sigur sinna manna á Wigan, 0:5, í dag. Rooney skoraði fyrsta mark leiksins sem var það 100. sem hann skorar fyrir félagið en Rooney skoraði tvö mörk í leiknum og þeir Berbatov, Owen og Nani gerðu sitt markið hver.
,,Þetta er frábært afrek og hann er bara ungur strákur,“ sagði Ferguson um Rooney, sem átti sannkallaðan stjörnuleik.
,,Sumir leikmenn hafa verið hjá félaginu í mörg ár og hafa ekki náð svona árangri eins og hann. Hann er í heimsklassa,“ sagði Ferguson sem sá Berbatov og Owen opna markareikning sinn í deildinni.
,,Þeir þurftu báðir á þessu að halda. Owen er einn mesti markaskorari landsins og markið getur ekki orðið til annars en að efla hann. Ég er líka mjög glaður fyrir hönd Dimitars. Ef framherjarnir halda áfram á þessari braut þá gefa þeir okkur mikið,“ sagði Ferguson.