Campbell tók tilboði Notts County

Sol Campbell er á leið í ensku 3. deildina.
Sol Campbell er á leið í ensku 3. deildina. Reuters

Enska 3. deildarliðið Notts County mun í dag tilkynna um að það hafi gert samning við varnarmanninn Sol Campbell. Þessi mikli reynslubolti, sem leikið hefur með Portsmouth undanfarin ár, verður í þjálfarateymi liðsins og mun jafnframt spila með því

Í sumar var Svíinn Sven Göran Eriksson ráðinn yfirmaður knattspyrnumála hjá Notts County en félagið ætlar sér stóra hluti á komandi árum. Notts County er í toppsæti 3. deildarinnar en liðið hefur 9 stig eftir fjóra leiki líkt og lærsveinar Guðjóns Þórðarsonar í Crewe Alexandra.

Campbell er 34 ára gamall og kemur til Notts County án greiðslu þar sem samningur hans við Portsmouth var útrunninn. Hann á að baki 74 landsleiki fyrir Englendinga og lék undir stjórn Sven Görans á sínum tíma.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert