Kjartan Henry Finnbogason byrjaði vel með sínu nýja liði, Falkirk, í skosku úrvalsdeildinni í knattspyrnu því hann skoraði í fyrsta leik sínum í dag, gegn Dundee United.
Markið dugði þó ekki Falkirk sem tapaði leiknum, 2:1, en Kjartan, sem fór beint í byrjunarliðið, minnkaði muninn fyrir liðið á 75. mínútu.
Kjartan kom til Falkirk í vikunni sem lánsmaður frá Sandefjord í Noregi.