Carragher: Enginn getur afskrifað Liverpool

Jamie Carragher.
Jamie Carragher. Reuters

Jamie Carragher varnarjaxlinn í liði Liverpool varar keppinauta liðsins við að afskrifa það í baráttunni um enska meistaratitilinn. Mikil gagnrýni kom á Liverpool-liðið eftir tvo tapleiki í þremur fyrstu umferðunum en það náð að hrista af sér slyðruorðið með því leggja Bolton að velli um síðustu helgi.

,,Við fengum verðskuldaða gagnrýni vegna þess að byrjun okkar á tímabilinu var ekki góð. En það getur enginn afskrifað okkur. Lið eins og við og Liverpool eru þau bestu, ekki bara á Englandi heldur hvar sem er í heiminum, að koma til baka eftir ósigra og komast á sigurbraut,“ segir Carragher.

,,Í leiknum á móti Bolton sýndu leikmenn hvaða karakter þeir hafa og það var gríðarlega mikilvægt að fá stigin þrjú ekki síst í ljósi þess að nú er komið hlé vegna landsleikja.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert