Ívar Ingimarsson lék sinn fyrsta leik með Reading í átta mánuði í kvöld þegar hann lék fyrri hálfleikinn með liði sínu í 2:0 sigri gegn Portsmouth. Ívar gekkst undir aðgerð á hné í janúar og hefur ekkert leikið síðan en hann stóð sig vel í kvöld og stutt er í hann verði klár í baráttuna með Reading í 1. deildinni.
Gylfi Þór Sigurðsson lék síðustu 20 mínúturnar með Reading en þrír leikmenn sem á dögunum gengu til liðs við félagið spiluðu með í kvöld.